Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 18. nóvember 2017 22:01
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ítalía: Roma sigraði Lazio - Sigur hjá Napoli gegn AC Milan
Radja Nainggolan skoraði annað mark Roma í kvöld.
Radja Nainggolan skoraði annað mark Roma í kvöld.
Mynd: Getty Images
Það voru tveir stórleikir á dagskrá ítölsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Fyrri leikurinn var viðureign Roma og Lazio og sá síðari viðureign Napoli og AC Milan.

Diego Perotti skoraði fyrsta mark helgarinnar í ítölsku úrvalsdeildinni þegar hann kom Roma yfir gegn Lazio í upphafi seinni hálfleiks.

Fjórum mínútum síðar var Roma komið með tveggja mark forystu, Radja Nainggolan gerði annað mark heimamanna. Ciro Immobile minnkaði muninn fyrir gestina en nær komust þeir ekki og stigin þrjú fóru til Roma.

Í síðari leik kvöldsins skoraði Lorenzo Insigne fyrsta markið, það kom í fyrri hálfleik. Piotr Zielinski kom Napoli í 2-0 á 73. mínútu en gestunum frá Mílanó tókast að klóra bakkann í lokin þegar Alessio Romagnoli kom boltanum í netið, niðurstaðan þar 2-1 sigur Napoli.

Roma 2 - 1 Lazio
1-0 Diego Perotti ('49 , víti)
2-0 Radja Nainggolan ('53 )
2-1 Ciro Immobile ('72 , víti)

Napoli 2 - 1 Milan
1-0 Lorenzo Insigne ('33 )
2-0 Piotr Zielinski ('73 )
2-1 Alessio Romagnoli ('90 )


Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 32 16 7 9 57 38 +19 55
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 32 4 16 12 30 48 -18 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner
banner