Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 18. nóvember 2017 08:00
Helgi Fannar Sigurðsson
Juventus vill ekki Fellaini
Marouane Fellaini.
Marouane Fellaini.
Mynd: Getty Images
Juventus hefur átt í viðræðum við umboðsmann Marouane Fellaini, leikmann Manchester United, um það að fá leikmanninn þegar samningur hans rennur út næsta sumar.

Juventus hefur nú hins vegar hafnað því að fá leikmanninn.

Fellaini hefur átt mjög gott tímabil með United hingað til en virðist ekki hafa áhuga á að framlengja samning sinn við félagið.

Juventus hefur ákveðið að snúa sér að öðrum leikmönnum en þeir hafa áhuga á að fá Leon Goretzka frá Schalke sem og Emre Can frá Liverpool en báðir þessir leikmenn verða samningslausir eftir tímabilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner