Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 18. nóvember 2017 14:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mustafi: Ég var heppinn
Mynd: Getty Images
„Það mikilvægasta er að halda áfram, áfram gakk," sagði varnarmaðurinn Shkodran Mustafi í samtali við Sky Sports eftir 2-0 sigur Arsenal á Tottenham í dag.

Mustafi skoraði eftir sendingu frá Mesut Özil.

„Ég sagði Mesut Özil að senda hann fyrir. Ef þú ert með leikmenn í liðinu þínu sem geta sent boltann svona fyrir, þá verðurðu að trúa því að þú getir náð skallanum."

Mustafi vitist vera rangstæður þegar hann skoraði og hann viðurkennir það sjálfur að hann hafi verið heppinn.

„Ég var ánægður að dómarinn skyldi ekki flauta rangstæðu. Ég var heppinn að komast upp með þetta. Svona er fótboltinn, þú færð hluti með þér og á móti þér, þetta jafnast út."
Athugasemdir
banner
banner