Arsenal Tula 0 - 0 Rubin Kazan
Rubin Kazan gerði markalaust jafntefli í rússnesku úrvalsdeildinni í dag. Liðið mætti Arsenal Tula.
Ragnar Sigurðsson lék í vörn Rubin Kazan, en hann er mættur aftur til Rússlands eftir að hafa kíkt til Katar með landsliðinu.
Ragnar var traustur að vanda.
Hvorugu liðinu tókst að skora og markalaust jafntefli var niðurstaðan. Rubin Kazan er í tíunda sæti deildarinnar.
Athugasemdir