banner
   lau 18. nóvember 2017 14:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wenger: Get gefið ykkur fullt af dæmum um óheppni okkar
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var mjög glaður í bragði þegar hann ræddi við fjölmiðlamenn eftir 2-0 sigur á Tottenham í dag.

„Við töpuðum ekki einbeitingunni í 90 mínútur, þetta var mjög flott," sagði Wenger eftir leikinn.

„Við vorum heppnir að Alexis Sanchez spilaði ekkert í landsleikjahléinu og Lacazette spilaði bara einn leik."

Umræður vöknuðu um það á samfélagsmiðlum að Mike Dean, dómari leiksins, hefði dæmt með Arsenal í leiknum. Til að mynda hefði verið rangstöðulykt af fyrra marki Arsenal sem kom eftir aukaspyrnu sem var frekar umdeild.

„Ég veit ekki hvort ákvarðanir dómarans hafi farið með okkur. Ég hef ekki séð hvort markið var rangstæða, en brotið var brot. Ég get gefið ykkur dæmi um fullt af leikjum þar sem við vorum óheppnir með ákvarðarnir dómarans."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner