Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 18. desember 2014 13:05
Magnús Már Einarsson
Ætlar að sannfæra Berbatov um að koma aftur í landsliðið
Dimitar Berbatov spilar með Monaco.
Dimitar Berbatov spilar með Monaco.
Mynd: Getty Images
Ivaylo Peteve, nýráðinn landsliðsþjálfari Búlgara, ætlar að reyna að sannfæra Dimitar Berbatov um að snúa aftur í landsliðið.

Hinn 33 ára gamli Berbatov hætti að spila með landsliðinu árið 2010 og svaraði ekki kalli hjá fyrrum þjálfara um að snúa aftur.

Peteve ætlar að reyna að telja Berbatov á að snúa aftur í landsliðið en hann er markahæsti leikmaðurinn í sögu búlgarska landsliðsins með 48 mörk.

,,Ég ætla að hitta hann og ræða málið. Við sjáum hvað gerist," sagði Petev.
Athugasemdir
banner
banner
banner