Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 18. desember 2014 18:22
Magnús Már Einarsson
Ísland með besta liði heims í riðli á Algarve mótinu
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Búið er að draga í riðla fyrir Algarve æfingamótið sem fer fram í Portúgal í mars á næsta ári.

Íslenska kvennalandsliðið er með Bandaríkjunum í riðli en þær eru í efsta sæti heimslistans.

Ísland er einnig með Noregi og Sviss í riðli. Íslenska liðið þekkir það svissneska vel eftir að þau mættust í undankeppni HM 2015.

A-riðill:
Svíþjóð
Þýskaland
Brasilía
Kína

B-riðill:
Noregur
Bandaríkin
Sviss
Ísland

C-riðill:
Danmörk
Frakkland
Japan
Portúgal
Athugasemdir
banner