Cagliari 1 - 3 Juventus
0-1 Carlos Tevez ('3 )
0-2 Arturo Vidal ('15 )
0-3 Fernando Llorente ('50 )
1-3 Luca Rossettini ('65 )
0-1 Carlos Tevez ('3 )
0-2 Arturo Vidal ('15 )
0-3 Fernando Llorente ('50 )
1-3 Luca Rossettini ('65 )
Juventus hefur nú fjögurra stiga forystu á toppi ítölsku deildarinnar eftir 3-1 sigur á útivelli gegn Cagliari í kvöld.
Leikmenn Ítalíumeistaranna skiptu mörkunum bróðurlega á milli sín. Carlos Tevez og Arturo Vidal gerðu sitt markið hvor snemma leiks, áður en Fernando Llorente bætti við þriðja markinu í upphafi síðari hálfleiks.
Cagliari tókst að klóra í bakkann um miðjan síðari hálfleik með marki Luca Rossettini. Nær komust heimamenn hinsvegar ekki og er liðið áfram í fallsæti með 12 stig.
Athugasemdir