Angel di Maria, leikmaður Manchester United, hefur verið valinn leikmaður ársins í Argentínu af íþróttafréttamönnum þar í landi.
Þetta vekur athygli þar sem Lionel Messi hefur verið áskrifandi af þessum verðlaunum undanfarin ár.
Þetta er í fyrsta skipti síðan árið 2006 sem Messi vinnur ekki þessi verðlaun.
Þetta vekur athygli þar sem Lionel Messi hefur verið áskrifandi af þessum verðlaunum undanfarin ár.
Þetta er í fyrsta skipti síðan árið 2006 sem Messi vinnur ekki þessi verðlaun.
Di Maria hjálpaði Real Madrid að vinna Meistaradeildina á síðasta tímabili og hann var í argentínska landsliðinu sem fór í úrslit á HM í sumar.
Lucas Pratto framherji Velez Sarsfield var einnig verðlaunaður í gær en hann var valinn bestu leikmaðurinn í argentínsku deildinni.
Athugasemdir