Steven Naismith var að framlengja samning sinn við Everton til ársins 2019.
Naismith hefur verið gífurlega mikilvægur á tímabilinu og er búinn að skora sex mörk þrátt fyrir að glíma við meiðsli.
Naismith hefur verið gífurlega mikilvægur á tímabilinu og er búinn að skora sex mörk þrátt fyrir að glíma við meiðsli.
,,Ég er ótrúlega hamingjusamur hérna og hef verið það frá því að ég skrifaði undir minn fyrsta samning við félagið," sagði Naismith við sjónvarpsstöð Everton.
,,Það tók mig ekki langan tíma að sjá hversu stórkostlegt knattspyrnufélag Everton er og er hæstánægður með að vera búinn að binda mig hér næstu árin."
Athugasemdir