Franska meistaraliðið PSG hefur náð samkomulagi við enska úrvalsdeildarliðið Newcastle um kaup á miðjumanninum Yohan Cabaye.
Sjónvarpsstöðin Canal greinir frá þessu í kvöld og segir kaupverðið nema 26 milljónum evra.
Kaupin munu ganga í gegn um leið og Newcastle tryggir sér Remy Cabella frá Montpellier, en talið er að Newcastle muni greiða um 12,6 milljónir punda fyrir Cabella.
Alan Pardew, stjóri Newcastle, viðurkenndi það í samtali við fjölmiðla um helgina að hann óttaðist að missa Cabaye fyrir lok janúargluggans og lítur nú út fyrir að af því verði.



