Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 19. janúar 2015 13:00
Magnús Már Einarsson
Anna Garðars í Val (Staðfest)
Anna er mætt í Val á nýjan leik.
Anna er mætt í Val á nýjan leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anna Garðarsdóttir hefur gengið til liðs við Val en hún kemur til félagsins frá HK/Víkingi.

Anna, sem spilar á miðjunni, þekkir vel til hjá Val því hún spilaði með liðinu með hléum frá 2007 til 2011.

Í fyrrasumar skoraði Anna þrjú mörk í tíu leikjum í fyrstu deildinni með HK/Víkingi.

Anna hefur einnig leikið með KR, Selfossi og Aftureldingu á ferlinum.

Samtals hefur Anna spilað 102 deildar og bikarleiki á ferlinum og skoraði í þeim 37 mörk.
Athugasemdir
banner
banner