Hollenska goðsögnin Johan Cruyff skrifar Johan Cruyff skrifar pistil í De Telegraaf þar sem hann hneykslast á því að Cristiano Ronaldo hafi tvö undanfarin ár unnið gullknöttinn sem besti leikmaður heims.
„Ég get ekki tekið þessum verðlaunum alvarlega lengur," segir Cruyff.
„Ég get ekki tekið þessum verðlaunum alvarlega lengur," segir Cruyff.
„2013 vann Bayern München allt sem hægt var að vinna en Cristiano Ronaldo vann þessi verðlaun en ekki Toni Kroos eða einhver annar í Bayern. 2014 var Kroos svo lykilmaður hjá liði sem vann HM meðan Ronaldo var ósýnilegur á mótinu. Samt var Kroos ekki meðal þriggja efstu í valinu á gullknettinum."
Sjálfur vann Cruyff gullknöttinn 1971, 1973 og 1974.
Athugasemdir