Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 19. janúar 2015 21:51
Ívan Guðjón Baldursson
England: Markalaust hjá Everton og West Brom
Mirallas klúðraði vítaspyrnunni sem hann heimtaði að taka.
Mirallas klúðraði vítaspyrnunni sem hann heimtaði að taka.
Mynd: Getty Images
Everton 0 -0 West Brom

Everton gerði markalaust jafntefli við West Bromwich Albion er liðin mættust á Goodison Park.

Heimamenn stjórnuðu leiknum og áttu mörg skot en besta færið kom undir lok fyrri hálfleiks þegar Everton fékk vítaspyrnu.

Belginn Kevin Mirallas heimtaði að taka spyrnuna í stað Leighton Baines og skaut Mirallas knettinum í stöngina.

Steven Naismith var brjálaður út í Mirallas þegar leikmenn gengu til búningsklefa í leikhlé og var Mirallas tekinn af velli fyrir Bryan Oviedo.

West Brom, sem átti ekki stakt skot á ramann, er nú þremur stigum fyrir ofan fallsæti og Everton er stigi ofar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner