Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 19. janúar 2015 08:11
Magnús Már Einarsson
ÍBV fær Letta á reynslu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV hefur fengið til sín á reynslu lettneska leikmanninn Edijs Joksts. Hann er 22 ára gamall og hefur verið leikmaður U-21 árs liðs Lettlands.

Edijs getur bæði leikið í stöðu miðvarðar sem og á miðjunni. Hann kom til Eyja í dag og mun æfa með liðinu næstu daga.

Á föstudag mun hann leika með liðinu gegn Grindavík í Fótbolti.net mótinu og svo aftur annan þriðjudag gegn Stjörnunni í sama móti.

Í heimalandinu hefur Edijs leikið með FC Jurmala og Daugava Riga í efstu deild í Lettlandi. Einnig hefur hann verið á mála hjá Oldham í Englandi.

Frekari fréttir af leikmannamálum ÍBV er að vænta á næstu dögum segir í tilkynningu frá knattspyrnuráði ÍBV.
Athugasemdir
banner
banner