Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 19. janúar 2015 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Ings hefur enn ekki rætt við Burnley um samning
Ings hefur vakið mikla athygli á tímabilinu.
Ings hefur vakið mikla athygli á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Danny Ings, framherji Burnley, segist enn ekkert vera nær því að gera nýjan samning við félagið.

Ings verður samningslaus eftir tímabilið og er talið að Liverpool og Tottenham séu á meðal félaga sem væru til í að fá þennan 22 ára gamla sóknarmann í sínar raðir.

,,Í hreinskilni sagt hef ég ekkert rætt samningamál, ég er bara að einbeita mér að fótboltanum," sagði Ings við Goals on Sunday.

,,Auðvitað eru alltaf orðrómar á samfélagsmiðlum og svoleiðis um leikmenn sem eru að standa sig vel. En ég er ekkert að hugsa um þetta, ég læt bara verkin tala. Ég er ánægður í augnablikinu."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner