Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 19. janúar 2015 12:46
Magnús Már Einarsson
Jeppe Hansen: Saknaði kærustunnar
Jeppe Hansen.
Jeppe Hansen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég hef saknað Íslands," sagði Jeppe Hansen í viðtali við bold.dk í dag eftir að greint var frá því að Stjarnan er að fá hann aftur í sínar raðir frá FC Fredericia í Danmörku.

Jeppe skoraði sex mörk í níu leikjum með Stjörnunni síðastliðið sumar áður en hann fór til Fredericia í júlí.

,,Það var virkilega góður tími þar (á Íslandi). Ég eignaðist kærustu þar og ég hef saknað hennar. Ég er ánægður með að fá tækifæri til að fara aftur þangað."

Eftir að Jeppe fór frá Stjörnunni tók magnað Evrópu ævintýri við hjá liðinu auk þess sem það varð Íslandsmeistari í fyrsta skipti.

,,Ég viðurkenni að ég var öfundsjúkur þegar ég var í sófanum og horfði á liðið spila í Póllandi, Skotlandi og á San Siro."

,,Að liðið hafi orðið meistari var mikið afrek. Ég ætla ekki að lofa því að við endurtökum það en ég vona að við getum barist um titilinn fram í síðustu umferð."

Athugasemdir
banner
banner