Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 19. janúar 2015 20:32
Ívan Guðjón Baldursson
Marotta: Ancelotti laug um áhuga sinn á Pogba
Pogba er búinn að skora 5 mörk í 16 deildarleikjum á tímabilinu, spilandi sem djúpur miðjumaður.
Pogba er búinn að skora 5 mörk í 16 deildarleikjum á tímabilinu, spilandi sem djúpur miðjumaður.
Mynd: Getty Images
Real Madrid var orðað við Paul Pogba, 21 árs miðjumann Juventus, en Carlo Ancelotti, þjálfari Real, neitaði þeim orðrómum og sagði félagið ekki vera á eftir Frakkanum hæfileikaríka.

Giuseppe Marotta, framkvæmdastjóri Juventus, segir þetta vera hvíta lygi hjá Ancelotti sem hefur verið að grennslast fyrir um miðjumanninn.

,,Ancelotti hefur spurt mig út í Pogba. Segist hann ekki hafa áhuga? Ég er viss um að hann hefur sínar ástæður en þetta er ekkert nema hvít lygi," sagði Marotta við Sky Italia.

,,Við munum gera allt til að halda Pogba innan félagsins en megum ekki gleyma því að erlend félög geta boðið hærri laun."
Athugasemdir
banner
banner