Bolton hefur ákveðið að losa sig við markvörðinn reynda Paddy Kenny en samningur hans var að renna út.
Hinn 36 ára gamli Kenny kom til Bolton í september eftir að hafa verið leystur undan samningi hjá Leeds United.
Hinn 36 ára gamli Kenny kom til Bolton í september eftir að hafa verið leystur undan samningi hjá Leeds United.
Kenny mætti í hrikalegu formi til leiks eftir sumarfrí hjá Leeds og ekki bætti úr skák að Massimo Cellino, eigandi Leeds, telur að talan 17 sé óhappatala og Kenny á afmæli 17. maí.
Hjá Bolton var Kenny þriðji markvörður en hann spilaði engan leik með liðinu.
Kenny hefur verið á láni hjá Oldham undanfarið en óvíst er hvað þessi reyndi markvörður tekur sér fyrir hendur núna.
Athugasemdir