Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 19. janúar 2015 14:22
Magnús Már Einarsson
Rodgers: Gerrard tapaði ekki titlinum með því að renna
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur beðið stuðningsmenn liðsins um að syngja ekki söngva til að gera grín að Steven Gerrard fyrirliða Liverpool þegar liðin mætast í undanúrslitum enska deildabikarsins annað kvöld.

Eins og frægt er þá rann Gerrard í leik gegn Chelsea undir lok tímabils sem varð til þess að Demba Ba skoraði og Liverpool missti af titlinum.

,,Jose er að tala af virðingu um leikmann sem er einn sá besti sem hefur spilað í þessari deild," sagði Brendan Rodgers stjóri Liverpool um ummæli Mourinho.

,,Ég endurtek að Steven var stór ástæða af því að við vorum að berjast um titilinn á síðasta tímabili."

,,Það að hann rann tapaði ekki titlinum, hann var stórt þáttur í því að við unnum hann næstum því. Hann er sterkur karakter og mun ekki vera í vandræðum með þetta."

Athugasemdir
banner
banner