Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 19. janúar 2015 15:30
Magnús Már Einarsson
Rodgers um fagn Lambert: Þetta var frábært
Partý í stúkunni.
Partý í stúkunni.
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, er alls ekki pirraður þó Rickie Lambert hafi fengið gult spjald fyrir að fagna marki gegn Aston Villa um helgina.

Lambert hljóp upp í stúku til stuðningsmanna Liverpool og fékk gula spjaldið í kjölfarið.

,,Mér fannst þetta vera frábært. Ég veit að hann var spjaldaður en þetta spjald var þess virði," sagði Rodgers.

,,Þetta var heimamaður sem skoraði og nýtti tækifærið til að fagna með stuðningsmönnum sínum...þetta sýndi andann í hópnum í augnablikinu og þetta var frábært augnablik."
Athugasemdir
banner
banner
banner