Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 19. janúar 2015 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Simeone spenntur fyrir samvinnu Torres og Mandzukic
Fernando Torres í leiknum í dag.
Fernando Torres í leiknum í dag.
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, er spenntur fyrir samstarfi þeirra Fernando Torres og Mario Mandzukic hjá liðinu.

Tvímenningarnir voru í fyrsta skiptið saman í byrjunarliðinu í 2-0 sigri Atletico gegn Granada í La Liga á sunnudag og skoraði Manzukic úr vítaspyrnu.

,,Andstæðingarnir voru vel skipulagðir varnarlega og margir leikmenn fyrir aftan boltann," sagði Simeone.

,,Þetta var í fyrsta skiptið sem Torres og Mandzukic spiluðu saman. Það er eðlilegt að það hafi ekki allt smollið, en þetta eru tveir framherjar sem eru bæði svipaðir og ólíkir. Ég var ánægður með þá."
Athugasemdir
banner
banner