Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 19. janúar 2015 11:07
Magnús Már Einarsson
Tilboði WBA í McManaman hafnað
Mynd: Getty Images
Wigan hefur hafnað tilboði frá West Bromwich Albion í kantmanninn Callum McManaman.

Tilboðið var í kringum fjórar milljónir punda.

Hinn 23 ára gamli McManman hefur skorað fimm mörk í 22 leikjum á tímabilinu.

,,Það þarf mikinn pening til að Callum fari frá Wigan. Stjórnin verður að ákveða það," sagði Malky Mackay stjóri WBA.

Tony Pulis tók við WBA á dögunum en hann er í leit að liðsstyrk fyrir síðari hluta tímabilsins.
Athugasemdir
banner
banner