Roma 4-0 Sampdoria
1-0 R. Nainggolan
2-0 E. Dzeko
3-0 El Shaarawy
4-0 R. Nainggolan
1-0 R. Nainggolan
2-0 E. Dzeko
3-0 El Shaarawy
4-0 R. Nainggolan
Eina leik kvöldins í ítalska bikarnum var að ljúka rétt í þessu. Þar sem Roma sigraði Sampdoria sannfærandi. Radja Nainggolan skoraði tvennu í leiknum en El Shaarawy og Edin Dzeko skoruðu eitt mark hvor.
Fyrsta mark leiksins kom á 39. mínútu og var þar Radja Nainggolan að verki. Edin Dzeko bætti síðan við öðru marki liðsins á 47. mínútu eftir undirbúning El Shaarawy.
Edin Dzeko þakkaði Shaarawy síðan fyrir með því að leggja upp mark fyrir hann á 61. mínútu áður en að Nainggolan skoraði sitt annað mark og 4 mark Rómverja á 90. mínútu eftir undirbúning Perotti.
Athugasemdir