Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 19. janúar 2017 20:17
Stefnir Stefánsson
Myndband: Ramos hrækti á Aspas
Fyrirliðinn sýndi af sér ódrengilega hegðun
Fyrirliðinn sýndi af sér ódrengilega hegðun
Mynd: Getty Images
Sergio Ramos varnarmaður Real Madrid og Iago Aspas framherji Celta Vigo áttust við í leik liðanna í gær.

Barátta þeirra var áhugaverð svo ekki sé meira sagt en þeim lenti saman oftar en einu sinni í leiknum. Það hitnaði fyrst í kolunum þegar Ramos féll í grasið eftir viðskipti sín við Aspas í seinni hálfleik. Eftir að Ramos stóð á fætur skiptust leikmennirnir á misfallegum orðum.

Seinna í leiknum virtist Ramos vera kominn með nóg og sýndi af sér einkar óíþróttamannslega hegðun þegar hann hrækti í átt að Aspas. Leikurinn endaði 2-1 fyrir Celta Vigo og annað tap Real í röð því staðreynd. En atvikið umrædda náðist á myndbandsupptökur.

Smelltu hér til að sjá atvikið.


Athugasemdir
banner
banner
banner