Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 19. janúar 2017 19:30
Stefnir Stefánsson
Nígería sagt vilja tryggja sér þjónustu Lookman
Ademola Lookman er gríðarlegt efni
Ademola Lookman er gríðarlegt efni
Mynd: Getty Images
Nígeríska knattspyrnusambandið er sagt vilja tryggja það að Ademola Lookman framherji Everton muni spila fyrir landsliðið í framtíðinni.

Lookman skaust fram á sjónarsviðið með Charlton Athletic á síðustu leiktíð og var í kjölfarið keyptur til Everton í janúarglugganum. Hann stimplaði sig síðan inn með marki í sínum fyrsta leik í úrvalsdeildinni, þegar hann kom inná sem varamaður gegn Manchester City um síðustu helgi.

Lookman hefur leikið fyrir yngri landslið Englands en hann fæddist á Englandi. Hann er þó gjaldgengur í Nígeríska landsliðið þar sem foreldrar hans eru frá Nígeríu.

„Ég sá hann á móti City, það er alltaf spennandi að sjá leikmann af nígerískum uppruna standa sig vel. Það er hlutverk þjálfarans (Gernot Rohr) að velja hann í liðið en við erum reiðubúnir að hjálpa honum að sannfæra Lookman að spila fyrir okkar þjóð." Sagði Bitrus Bewarang formaður nígeríska knattspyrnusambandsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner