Hinn 22 ára gamli Roberto Gagliardini gekk til liðs við Inter Milan frá Atalanta fyrr í þessum mánuði. Hann segist hvergi smeykur þrátt fyrir að honum hafi verið líkt við Steven Gerrard eftir frammistöðu sína í fyrstu leikjum sínum fyrir félagið.
Þá hefur Gagliardini einnig verið líkt við Marco Tardelli sem varð heimsmeistari með Ítölum á HM 1982.
„Að hafa gengið til liðs við félag eins og Inter og að hafa tekið þátt í tveimur sigurleikjum er frábær tilfinning."
„Nýji Tardelli? Nýji Gerrard? Þessi ummæli hræða mig ekki, ég er leikmaður sem reyni að hlusta og læra. Þessi hrós eru auðvitað frábær en ég pæli ekki of mikið í þessu. Ég þarf að halda ró minni, láta mér líða vel og hugsa um að bæta mig." sagði Roberto Gagliardini.
Athugasemdir