Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. janúar 2018 21:40
Ingólfur Stefánsson
Championship: Hörður spilaði í markalausu jafntefli
Mynd: Getty Images
Derby 0-0 Bristol

Hörður Björgvin Magnússon spilaði allan leikinn í markalausu jafntefli Bristol City og Derby County í ensku Championship deildinni í kvöld.

Liðin eru bæði í toppbaráttu í deildinni en Bristol fara upp fyrir Aston Villa í fjórða sætið eftir jafnteflið. Derby County eru áfram í öðru sæti deildarinnar.

Derby County vildu fá vítaspyrnu undir lok leiks þegar Cameron Jerome framherji liðsins féll niður í vítateig sínum. Derby menn virtust hafa eitthvað til síns máls en dómari leiksins gaf Jerome gult spjald fyrir leikaraskap.

Derby voru líklegri til þess að fara með sigur af hólmi í leiknum og áttu meðal annars sláarskot í fyrri hálfleik.

Tveir markmenn spiluðu fyrir Bristol í dag en Luke Steele kom inn fyrir Frank Fielding í hálfleik. Báðir markmenn stóðu sig vel í leiknum og vörðu oft á tíðum glæsilega.

Bristol voru í vörn mest allan leikinn en hefðu getað stolið sigrinum í lok leiksins. Það gerðist þó ekki og markalaust jafntefli niðurstaðan.
Athugasemdir
banner
banner