HK 2 - 1 FH
0-1 Þórarinn Ingi Valdimarsson ('5)
1-1 Brynjar Jónasson ('51)
2-2 Brynjar Jónasson ('66)
0-1 Þórarinn Ingi Valdimarsson ('5)
1-1 Brynjar Jónasson ('51)
2-2 Brynjar Jónasson ('66)
HK vann FH í Fótbolta.net mótinu í kvöld en leikið var í Kórnum. HK-ingar sem er í Inkasso-deildinni hafa því unnið tvö Pepsi-deildarlið í mótinu en liðið vann Keflavík í fyrstu umferð.
FH gerði jafntefli gegn Grindavík í fyrstu umferð. Pétur Viðarsson og Hjörtur Logi Valgarðsson voru saman í hjarta varnarinnar þá og byrjuðu aftur í kvöld. Bergsveinn Ólafsson þurfti að sætta sig við að byrja á bekknum. Robbie Crawford lék í hægri bakverði.
Allir nýju leikmennirnir sem komu til FH-inga í vetur voru með.
Þórarinn Ingi Valdimarsson kom FH yfir snemma leiks með skoti fyrir utan teig og þannig var staðan í hálfleik, 0-1 fyrir FH.
Brynjar Jónasson jafnaði fyrir HK snemma í seinni hálfleik eftir klafs í teignum og staðan því orðin 1-1.
HK komst svo yfir eftir rúmlega klukkutíma leik. Ásgeir Marteinsson átti þá frábæran einleik og kom boltanum á Bjarna Gunnarsson sem lét verja frá sér í dauðafæri en Brynjar var þá mættur og kláraði færið vel. Reyndist þetta sigurmarkið í leiknum.
HK-ingar fara vel af stað en Brynjar Björn Gunnarsson tók við þjálfun liðsins eftir að Jóhannes Karl Guðjónsson var ráðinn þjálfari ÍA í vetur.
Byrjunarlið FH: Gunnar, Robbie, Pétur, Logi, Tóti, Davíð (f), Gummi Kristjáns, Kristinn Steindórs, Lennon, Halldór Orri og Castillion.
— FHingar.net (@fhingar) January 19, 2018
Bekkurinn: Vignir, Beggi, Böddi, Grétar, Gummi Kalli, Bjarni Þór og Atli Guðna.
Athugasemdir