Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 19. janúar 2018 17:30
Elvar Geir Magnússon
Klopp: Kannski stekkur einhver fyrir andlitið á mér
Þjóðverjinn geðþekki.
Þjóðverjinn geðþekki.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpol, útilokar ekki að styrkja leikmannahóp sinn í janúarglugganum en aðeins ef eitthvað mjög gott býðst.

Klopp segist ekki vera að vinna í því að kaupa leikmann en í byrjun ársins kom varnarmaðurinn Virgil van Dijk. Þá var Philippe Coutinho seldur til Barcelona.

Klopp reyndi að fá kaupum á Naby Keita frá RB Leipzig flýtt en þýska félagið tók ekki vel í það og leikmaðurinn fer á Anfield í sumar.

„Ef einhver stekkur fyrir andlitið á mér þá skoðum við það," sagði Klopp þegar hann var spurður að því hvort hann ætlaði að versla.

„Fyrst af öllu þurfum við að nota þá gæðaleikmenn sem við höfum. Á Adam Lallana að fylla skarð Coutinho? Nei, en hann er frábær leikmaður."

Klopp var ekki að nenna að svara spurningum um framtíð Daniel Sturridge en ítalska félagið Inter er meðal áhugasamra.

„Það er mikilvægur kafli á tímabilinu framundan og mikið eftir. Við þurfum á öllum okkar mönnum að halda,"

Sjá einnig:
Liverpool vill ekki lána Woodburn

Liverpool á leik gegn Swansea á mánudag en hér að neðan má sjá stöðuna í ensku úrvalsdeildinni.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner