Manchester City mætir Newcastle klukkan 17:30 á morgun í ensku úrvalsdeildinni.
David Silva mun væntanlega snúa aftur í lið City eftir að hafa misst af tapleiknum gegn Liverpool um síðustu helgi vegna magavandræða.
David Silva mun væntanlega snúa aftur í lið City eftir að hafa misst af tapleiknum gegn Liverpool um síðustu helgi vegna magavandræða.
Fabian Delph fór meiddur af velli á Anfield og þá gæti Vincent Kompany misst af leiknum á morgun.
Dwight Gayle er tæpur hjá Newcastle eftir að hafa fengið högg í 1-1 jafntefli gegn Swansea.
Florian Lejeune er einnig tæpur og Jesus Gamez er á meiðslalistanum.
City er með tólf stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en Newcastle er í fimmtánda sæti, þremur stigum fyrir ofan fallsæti.
Á meðfylgjandi mynd má sjá líkleg byrjunarlið að mati Guardian.
Sjá einnig:
Hjálmar Örn spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Athugasemdir