Alexis Sanchez kvaddi liðsfélaga sína í Arsenal rétt fyrir klukkan 23 í kvöld og yfirgaf hótelið sem leikmenn liðsins dvelja á fyrir leikinn gegn Crystal Palace á morgun. The Mirror og Daily Mail greina bæði frá þessu.
Sanchez er á leið til Manchester til að ganga frá félagaskiptum til Manchester United.
Sanchez var einn af 19 leikmönnum Arsenal á hótelinu og jafnvel var búist við að hann yrði í hóp gegn Palace á morgun þar sem samkomulag var ekki í höfn við United.

Nú virðist United hins vegar hafa klárað málið og Sanchez gengur í raðir félagsins á meðan Henrikh Mkhitayan fer til Arsenal í skiptum.
Mkhitaryan kvaddi liðsfélaga sína hjá Manchester United eftir æfingu fyrr í dag.
Athugasemdir