Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. janúar 2018 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan leitar að yfirþjálfara yngri flokka
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Yfirþjálfari hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á öllu faglegu barna- og unglingastarfi knattspyrnudeildar í samráði við barna- og unglingaráð og framkvæmdastjóra.

Yngri flokkar deildarinnar telja yfir 800 iðkendur og 25 metnaðarfulla og faglega þjálfara í 8.- 2.flokki karla og kvenna.

Leitað er að kraftmiklum leiðtoga í fullt starf sem hefur brennandi áhuga á að vinna með Stjörnunni að uppbyggingu öflugustu yngri flokka landsins í knattspyrnu.

Starfssvið yfirþjálfara yngri flokka
· Fagleg forysta um þjónustu við iðkendur.
· Uppbygging mannauðs og liðsheildar ásamt ábyrgð á þjálfaramálum.
· Yfirumsjón með skipulagi starfsins og daglegur rekstur.
· Samvinna við meistaflokka deildarinnar.
· Stefnumótun, markmiðasetning og áætlanagerð í samvinnu við barna- og unglingaráð.

Menntunar- og hæfniskröfur
· Brennandi áhugi á uppbyggingu yngri flokka knattspyrnudeildar og innleiðingu stefnu hennar.
· Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar.
· Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun.
· Framtíðarsýn og ósérhlífni.
· UEFA A þjálfaragráða.

Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2018
Ítarleg ferilskrá ásamt meðmælum, kynningarbréf og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið skal berast til Ásu Ingu Þorsteinsdóttur framkvæmdastjóra Stjörnunnar á netfangið [email protected] merkt yfirþjálfari knattspyrnudeildar.
Athugasemdir
banner
banner
banner