Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. janúar 2018 10:53
Elvar Geir Magnússon
Twitter óttaðist að Piers Morgan væri í sjálfsvígshugleiðingum
Piers Morgan liggur ekki á skoðunum sínum.
Piers Morgan liggur ekki á skoðunum sínum.
Mynd: Getty Images
Fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan er stuðningsmaður Arsenal og er duglegur að tísta um sitt lið á Twitter.

Morgan stýrir nú morgunsjónvarpinu í Bretlandi á sjónvarpsstöðinni ITV.

Morgan liggur ekki á skoðunum sínum varðandi Arsenal og hefur lengi kallað eftir því að Arsene Wenger verði rekinn. Hann kvartar í sífellu yfir þróun liðsins undir hans stjórn og lýst svo sannarlega ekki á blikuna.

Sama hversu harðorður Morgan er í garð Wenger þá haggast sá franski ekki á stjórastólnum.

Einhver notandi á Twitter hefur haft áhyggjur af geðheilsu Morgan því hann fékk skilaboð frá forritinu um að tilkynning hefði borist um að hann gæti verið í sjálfsvígshugleiðingum.

Athugasemdir
banner
banner
banner