Sky Sport Italia og Mediaset Premium halda því fram að Amin Younes hafi hafnað Swansea.
Younes er 24 ára kantmaður Ajax og hefur gert tvö mörk í fimm landsleikjum fyrir Þýskaland.
Younes er 24 ára kantmaður Ajax og hefur gert tvö mörk í fimm landsleikjum fyrir Þýskaland.
Ajax samþykkti 10 milljónir evra í Younes en leikmaðurinn vill ekki yfirgefa félagið strax, því samningur hans rennur út í sumar. Hann hefur komist að samkomulagi við Napoli og mun skrifa undir samning í júlí.
Kantmaðurinn, sem er búinn að skora tvö og leggja tvö upp í þrettán leikjum á tímabilinu, segir það vera draum sinn að spila fyrir Napoli.
Athugasemdir