Wilson Rodriguez, faðir kolumbíska landsliðsmannsins James Rodriguez, er ánægður með að sonur sinn hafi farið frá Real Madrid til Bayern Munchen síðastliðið sumar.
Hinn 26 ára gamli James er á tveggja ára lánssamningi hjá Bayern en hann hefur hjálpað liðinu að ná 19 stiga forskoti á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar.
Hinn 26 ára gamli James er á tveggja ára lánssamningi hjá Bayern en hann hefur hjálpað liðinu að ná 19 stiga forskoti á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar.
„Sonur minn gerði vel með því að fara frá Real Madrid til Bayern Munchen og hann er mjög ánægður í Þýskalandi," sagði Wilson.
„Hann lifir rólegu og ánægjulegu lífi og það er gríðarlega mikilvægt til að hann nái að standa sig inni á vellinum."
„Hann elskar Real Madrid mikið og enginn getur efast um það en það besta sem hann gat gert var að fara frá félaginu."
Athugasemdir