Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 19. febrúar 2018 22:16
Ívan Guðjón Baldursson
Grigg: Þægilegur og auðveldur leikur fyrir okkur
Mynd: Getty Images
Will Grigg og liðsfélagar hans hjá Wigan Athletic eru í sjöunda himni um þessar mundir.

Wigan, sem er í toppbaráttu C-deildarinnar, kom öllum á óvart og sló Manchester City úr leik í 16-liða úrslitum enska bikarsins.

Will Grigg skoraði eina mark leiksins gegn 10 leikmönnum City á lokakafla leiksins.

Man City var betri aðilinn allan tímann og eiga heimamenn risastórt hrós skilið fyrir að hafa náð að halda hreinu.

„Þetta var þægilegur og auðveldur leikur fyrir okkur," sagði Grigg við BBC í gríni.

„Nei auðvitað ekki, þetta var ótrúleg frammistaða hjá strákunum og við erum allir í sjöunda himni."

Grigg slapp í gegnum vörn Man City eftir að Kyle Walker hafði leyft boltanum að renna framhjá sér.

„Ég slapp í gegn þegar vörnin var hátt uppi og svo var þetta bara smá kapphlaup við Kyle Walker.

„Ég er markaskorari og þegar ég kemst í færi þá nýti ég það. Það hefur gengið sérstaklega vel hjá mér í bikarnum."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner