Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 19. febrúar 2018 22:29
Magnús Már Einarsson
Myndband: Aguero sló stuðningsmann Wigan
Aguero missti stjórn á skapi śinu.
Aguero missti stjórn á skapi śinu.
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Wigan komu hlaupandi inn á völlinn eftir magnaðan 1-0 sigur liðsins á Manchester City í enska bikarnum í kvöld.

Tapið fór ekki vel í leikmenn Manchester City og Sergio Aguero gæti átt von á refsingu eftir að hann sló stuðningsmann Wigan.

Stuðningsmaðurinn hafði verið að atast í Aguero og Argentínumaðurinn sló frá sér.

Aguero ætlaði að ráðast á stuðningsmanninn í kjölfarið en hann var stöðvaður á endanum.

Hér að neðan má sjá myndband af atvikinu.



Athugasemdir
banner
banner
banner