Philippe Coutinho leikmaður Liverpool segir að það eina sem er ásættanlegt gegn Man City sé sigur.
„Þetta verður mjög mikilvægur leikur. City er eitt af stóru liðunum á Englandi, það er enginn vafi. Nákvæmlega núna erum við í baráttu við þá um annað sætið í deildinni. Við verðum að vinna," sagði Coutinho.
„Markmið okkar núna er að enda í öðru sæti deildarinnar og tryggja okkur í Meistaradeildina á næsta ári."
Leikur Manchester City og Liverpool hefst klukkan 16:30 á Etihad-leikvanginum í Manchester.
Athugasemdir