Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
   sun 19. mars 2017 21:26
Magnús Már Einarsson
Ejub: Vona að við fáum 4-6 leikmenn fyrir mót
Ejub Purisevic.
Ejub Purisevic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta voru fín úrslit í erfiðum leik," sagði Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ólafsvíkur eftir 2-1 tap gegn Val í Lengjubikarnum í dag.

Mirza Mujicic og Hörður Ingi Gunnarsson hafa bæst við lið Víkings undanfarna daga en Ejub er hvergi hættur á leikmannamarkaðinum.

Fjórir leikmenn eru komnir til Víkings í vetur en níu eru horfnir á braut.

„Við ætlum að reyna að fá jafnmarga nýja menn og við erum búnir að missa. Við erum ekki með stóran hóp,"

„Leitin að leikmönnum gengur upp og niður. Ég vona að við fáum 4, 5 eða 6 leikmenn fyrir mót en það er ómögulegt að segja.

Sex vikur eru í fyrsta leik í Pepsi-deildinni en Ejub væri til í að hafa lengri tíma í mót. „Ég myndi óska þess að núna væri bara byrjun febrúar," sagði Ejub.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner