Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. mars 2017 18:22
Ívan Guðjón Baldursson
England: Jafnt í fjörugum stórleik á Etihad
Mynd: Getty Images
Manchester City 1 - 1 Liverpool
0-1 James Milner ('51, víti)
1-1 Sergio Aguero ('69)

Stórslag Manchester City og Liverpool var að ljúka með 1-1 jafntefli eftir gríðarlega spennandi 90 mínútur þar sem leikmenn virtust á köflum vera að keppast við að klúðra auðveldum færum.

Furðuleg dómgæsla Michael Oliver setti einnig svip sinn á leikinn, en hann tók margar umdeildar ákvarðanir.

James Milner kom Liverpool yfir með marki úr vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik eftir umdeildan vítaspyrnudóm. Sergio Aguero jafnaði tæplega 20 mínútum síðar eftir glæsilega stoðsendingu frá Kevin De Bruyne.

Leikurinn var galopinn og skiptust liðin á að sækja. Bæði lið fengu frábær færi sem einhvern veginn fóru forgörðum. De Bruyne skaut í stöng úr fimm metra færi áður en Adam Lallana hitti ekki boltann í dauðafæri á hinum endanum.

Jafnteflið er sanngjarnt og eitt stig skilur liðin að í þriðja og fjórða sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner