Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. mars 2017 11:35
Stefnir Stefánsson
Jones: Getum spjarað okkur án þeirra
Mynd: Getty Images
Phil Jones er bjartsýnn fyrir leik liðsins gegn Middlesbrough sem að hefst núna klukkan 12:00. United er án Zlatan, Pogba og Herrera í dag og það hræðir ekki Jones.

„Við getum spjarað okkur án þeirra. Við erum með nógu sterkan hóp til að takast á við svona vandamál. Við erum með mjög breiðan og góðan hóp og það er á svona dögum sem að það sannar sig hversu mikilvægt er að vera með næga breidd."

„Það er alltaf eitthvað aukabarátta sem hellist yfir menn sem að mæta Manchester United og eftir að þeir ráku stjórann sinn þá held ég að sú barátta verði enn meiri frá þeim í dag, ég reikna með hörkuleik." sagði fyrirliðinn um Middlesbrough liðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner