Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 19. mars 2017 15:45
Stefnir Stefánsson
Klopp: City erfiðasta liðið til að mæta í þessari deild
Ber mikla virðingu fyrir City
Ber mikla virðingu fyrir City
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp þjálfari Liverpool lýsti hversu mikla virðingu hann hefur fyrir Pep Guardiola þjálfara Manchester City þegar hann ræddi við blaðamenn fyrir leik liðanna í dag.

„Ég efast ekki um gæði hans sem þjálfara, það eru mögulega einhverjir sem gera það en ég er ekki einn af þeim. Ég ber gríðarlega virðingu gagnkvart honum," sagði Jurgen Klopp.

„Ég held að fáir efist um hann sem þjálfara þrátt fyrir að þeir séu fallnir úr leik í meistaradeildinni. Mér fannst heillandi hvernig þeir nálguðust leikinn gegn Monaco,"

„City hefði auðveldlega getað unnið þann leik í seinni hálfleik. En þeir eru mennskir eins og við erum allir, þeir fóru illa með nokkur góð færi. Fyrir mér er Manchester City erfiðasta liðið til að mæta í þessari deild. Þrátt fyrir að ímynd þeirra er aðeins öðruvísi en skoðanir mínar akkúrat núna." sagði Jurgen Klopp sem ber greinilegar gríðarlega virðingu fyrir andstæðingi sínum í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner