„Þetta var fullstórt miðað við gang leiksins í heild en alveg í takt við það sem við gerðum eftir að við lentum undir," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, eftir 4-0 tap gegn KR í Lengjubikarnum í gær.
Lestu um leikinn: KR 4 - 0 ÍBV
„Við gáfumst of fljótt upp."
Eyjamönnum gekk erfiðlega að skapa sér færi í leiknum og segir Kristján að þetta hafi verið dæmigerður hægur leikur í hitanum í Egilshöll.
„Það er ekki hægt að hafa neinar áhyggjur. Það var ekkert í kortunum að leikurinn færi svona. Leikurinn fór frá okkur í lokin. Riðillinn er mjög jafn og við eigum möguleika á að fara áfram, þá þurfum við að vinna síðasta leikinn gegn Selfossi. Markatalan er samt orðin slæm núna."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir