Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 19. mars 2017 18:42
Ívan Guðjón Baldursson
Milner: Ég hef séð dæmt á svona
Mynd: Getty Images
James Milner skoraði eina mark Liverpool í 1-1 jafntefli gegn Manchester City á Etihad leikvanginum í dag.

Milner skoraði úr vítapsyrnu snemma í síðari hálfleik, en Sergio Aguero jafnaði tæpum 20 mínútum síðar.

„Bæði lið komu til að sigra og úr varð gríðarleg skemmtun, meira að segja fyrir hlutlausa áhorfendur," sagði Milner við Sky Sports eftir jafnteflið.

„Við erum svekktir með að hafa misst niður forskotið en við erum ánægðir með stigið, jafnteflið var sanngjarnt miðað við allt sem gekk á."

Milner slapp með skrekkinn þegar hann tæklaði Raheem Sterling niður í eigin vítateig án þess að fá dæmt á sig.

„Þetta var 50/50 bolti. Ég hef séð dæmt á svona, sem betur fer fyrir mig var ekki dæmt á þetta í dag."
Athugasemdir
banner
banner