Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. mars 2017 14:00
Stefnir Stefánsson
Pochettino: Við þurfum að finna lausnir
Mynd: Getty Images
Maurico Pochettino gaf sig á tal við blaðamenn fyrir leik liðsins gegn Southampton á White Hart Lane sem hefst innan skamms.

„Við þurfum að finna lausnir þangað til að Harry (Kane) verður aftur heill. Við erum með leikmenn sem geta staðið sig vel undir pressu og þetta er frábært tækifæri fyrir Son og Vincent (Janssen) til að sýna hvað í þeim býr." sagði Argentínumaðurinn sem segist hvergi smeykur þrátt fyrir meiðsli Kane.

„Við erum ekki áhyggjufullir, við erum í góðu ásigkomulagi. Við vonum að þetta verði ekki eins og þegar Kane meiddist síðast. Ég tel að liðið í heild sinni sé allt öðruvísi núna en þegar það gerðist síðast," sagði Pochettino.

„Þetta var erfitt undirbúningstímabil eftir Evrópumótið og núna erum við á betri stað heldur en við vorum í upphafi tímabils. Við erum töluvert stöðugri og við höfum bætt okkar leik til muna," sagði Pochettino að lokum.
Athugasemdir
banner
banner