Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 19. mars 2018 15:43
Magnús Már Einarsson
Aron Jó dregur sig úr bandaríska landsliðshópnum
Mynd: Getty Images
Aron Jóhannsson hefur dregið sig úr bandaríska landsliðshópnum fyrir komandi vináttuleik gegn Paragvæ.

Aron sneri aftur í lið Werder Bremen í janúar eftir fjarveru vegna meiðsla.

Undanfarnar vikur hefur Aron verið í stuði með Werder Bremen og hann var valinn í bandaríska landsliðið á ný í kjölfarið.

Meiðsli á hásin settu hins vegar strik í reikninginn og því verður Aron ekki með gegn Paragvæ.

Hann verður þess í stað áfram í Þýskalandi í meðhöndlun vegna meiðslanna.




Athugasemdir
banner
banner
banner