Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 19. mars 2018 12:00
Magnús Már Einarsson
Gilles Mbang Ondo í Selfoss (Staðfest)
Gilles Mbang Ondo.
Gilles Mbang Ondo.
Mynd: Selfoss
Framherjinn Gilles Mbang Ondo hefur samið við Selfyssinga eftir að hafa verið á reynslu hjá félaginu í nokkrar vikur.

Ondo hefur skorað tvö mörk í fjórum leikjum í Lengjubikarnum með Selfyssingum undanfarnar vikur en hann skoraði glæsilegt mark gegn HK um helgina eins og sjá má neðst í fréttinni.

Hinn 32 ára gamli Ondo spilaði með Grindavík við góðan orðstír frá 2008 til 2010 en hann varð markakóngur í Pepsi-deildinni árið 2010.

Eftir það fór Ondo til Stabæk í norsku úrvalsdeildinni en þar á eftir lék hann í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum, Líbanon, Óman og Andorra.

Fyrir síðasta sumar gekk Ondo í raðir Vestra en hann skoraði fimm mörk í fjórtán leikjum í 2. deildinni í fyrra.

Hér að neðan má sjá markið glæsilega sem Ondo skoraði gegn HK um helgina (1:20).


Athugasemdir
banner
banner
banner