Þrír leikmenn í mexíkóska landsliðshópnum munu missa af æfingaleiknum gegn Íslandi vegna meiðsla.
Jonathan dos Santos, fyrrverandi leikmaður Barcelona, er meðal þeirra sem missa af leiknum. Hinir tveir eru Javier Aquino og Jurgen Damm, kantmenn Tigres.
Jonathan dos Santos, fyrrverandi leikmaður Barcelona, er meðal þeirra sem missa af leiknum. Hinir tveir eru Javier Aquino og Jurgen Damm, kantmenn Tigres.
Giovani dos Santos, bróðir Jonathan, var ekki valinn í upprunalega hópinn vegna meiðsla og er varnarmaðurinn Oswaldo Alanis sá eini sem búið er að bæta við hópinn.
Mexíkó spilar við Ísland á föstudaginn og mætir Króatíu svo þriðjudaginn 27. mars. Aquino og Damm gætu náð leiknum gegn Króötum.
Mexíkó er í afar erfiðum riðli ásamt Þýskalandi, Suður-Kóreu og Svíþjóð.
Athugasemdir