Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 19. mars 2018 11:30
Magnús Már Einarsson
Lukaku: Við fáum fullt af góðum leikmönnum
,,Getum við keypt nokkra góða?
,,Getum við keypt nokkra góða?
Mynd: Getty Images
Romelu Lukaku, framherji Manchester United, reiknar með að félagið fái góðan liðsstyrk í sumar. Manchester United datt út í Meistaradeildinni í síðustu viku og möguleikar liðsins á að vinna ensku úrvalsdeildinni eru litlir.

Lukaku segir að United mæti með öflugra lið til leiks á næsta tímabili.

„Við erum Manchester United og við þurfum að bæta okkur á hverju ári. Ég veit að margir góðir leikmenn koma til okkar fyrir næsta tímabil. Það er pottþétt," sagði Lukaku eftir 2-0 sigurinn á Brighton í enska bikarnum um helgina.

„Ég hlakka til. Við þurfum að vinna á næsta ári og þá þurfum við að bæta hópinn. Við þurfum að reyna að vinna eins marga titla og við getum."

„Ég tel að við séum ekki svo langt frá því að berjast um stærstu titlana. Við vissum strax eftir leikinn gegn Sevilla að við spiluðum ekki nægilega vel og við tökum gagnrýninni."

Athugasemdir
banner
banner
banner